Tag Archives: Hrímstígur
Vopnuð lögregla fjölgar hryðjuverkum
Lögreglan hefur skotið íslenskan borgara og saksóknari hvítþvegið það. Lögreglan hefur blindað borgara með eiturúða og setur 11 sinnum fleiri í einangrunarvist án dóms en Danir gera sem þó eru 15 sinnum fjölmennari en við. Fleira mætti tína til, en vopnuð lögregla á almannafæri skelfir mig meira en einhverjir bavíanar frá útlöndum, í það minnsta hefur hún framið fleiri hryðjuverk á Íslandi. Auk þess er nær útilokað að komast inn í landið … Lesa meira
Alsæla atvinnuleysis og brostinna vona
Atvinnuleysi er yndislegt, halda sumir, og virðast halda að auðvelt sé að taka fjórfaldri tekjulækkun og lifa á ölmusu. Lífsneisti heimila er margbrotinn, stundum þverbrotinn en lífið er ekki mælt í peníngum. Lífið er betur mælt í trú fólks á sjálft sig og getu til að lifa sínu dags daglega lífi í virðingu, bæði við sjálft sig og aðra. Því miður er mikið af orðagjálfri manna, bæði í stjórnmálum og … Lesa meira
Hugurinn er háður aðstæðum og innri veröld
Síðla vetrar 2013 þurfti ég að vinna úr erfiðu máli og það lá þungt í. Ég neyddist til að færa gamla bílinn minn inn í garð svo hann yrði ekki dreginn daginn eftir. Ég á garðinn en ekki götuna og þar sem búið var að klippa af honum hafði Heilbrigðiseftirlitið sett miða á bílinn. Ég hafði tíu daga til að setja bílinn á númer eða fjarlægja hann að öðrum kosti. … Lesa meira
Óvart skotið á vont mark
Það er skrýtin tilfinning að horfa á hugbúnað sem aldrei átti að verða, og spurja sig hvernig hann varð til. „Alpha Pack“ var í upphafi skrifað fyrir mín eigin verkefni sem einfalt verkferlakerfi. Ég hafði í upphafi þörf til að skrá niður hugmyndir. Ég er fyrst og fremst hugmyndasmiður og þar sem ég hef lagt stund á sálfræði, guðfræði og heimspeki, er garðurinn stundum frjór. Reynslan er sú að fyrir … Lesa meira
Hið heilaga nú
Hið heilaga nú nýtur mikilla vinsælda síðustu ár. Margir kennarar eru útblásnir af fullyrðingum þess að maður þurfi að lifa í núinu eða tengjast núinu og þar fram eftir götunum. Margir trúa þessum þvættingi. Ég trúði þessu líka hér áður – enda virkar þetta augljóst. Ef þú ert í núinu hefurðu varla áhyggjur af morgundeginum? Varla ertu að dragnast með fortíðina ef þú ert í núinu? Það virðist því augljóst … Lesa meira
Benjamín, spámaður Guðs
Þegar ég heyrði fyrst um Benjamín H. J. Eiríksson var það í lítilli frásögu innan kunningjanetsins. Ég hef þá verið liðlega tvítugur. Spjallið var á þá leið að hann hefði verið merkur hagfræðingur, en hefði geggjast og áliti sig vera Jesú endurholdgaðan. Ég var meðlimur Votta Jehóva á þessum tíma og að sjálfsögðu var þar litið niður á alla sem ekki voru sömu trúar og þeir. Í dag er ég … Lesa meira
Lýsing er í minni veröld þjófur
Þegar Lýsing tók af mér bílinn streittist ég á móti sem best ég mátti. Ég hafði borgað í bílnum 60% af láninu.Því miður gat ég ekki lengur staðið í skilum eftir að Fiskistofustjóri eyddi frama mínum. Nú tekur Lýsing bílinn og finnur eitthvað í honum til að gera við. Vissulega þurfti bíllinn viðhald og reyndar hefði ég gert við hið sama og hafði ætlað mér það. Var ég búinn að … Lesa meira