Að snúa á hugann

Úr bókinni „Ferli jákvæða viljans“:

… Ef þú gerir eitthvað sem þú gerir ekki nógu vel, þú hefur kannski oft gert einhver mistök, er algengt að hugsa „ég er svo ómöguleg.“ Þegar þú lærir að taka eftir þessum ómeðvituðu og vanabundnu hugsunum – en Ferlið kennir það – þá ferðu að stöðva þessa hugsun og snúa henni við.

„Þetta voru mistök en ég er ekki ómöguleg.“

Fyrir vikið muntu fara að taka betur eftir þegar þú gerir vel. Þá muntu æfa þig að segja „ég er bara kúl á þessu, ég er bara fín, og frábær.“ Í hvert sinn sem þú gerir eitthvað þokkalega.

Við erum vön að tengja mistök við sjálfsásökun. Við erum ekki vön að tengja árangur við sjálfshvatningu, sem er einmitt það sem Ferlið breytir. Þú lærir að sjá þegar þú gerir eitthvað vel og segja við sjálfa þig „þetta var flott hjá mér.“ „Ég er dugleg“ eða „ég er kúl á þessu“ eða „ég er frábær“. Þú ferð að taka eftir þegar þú gerir lítið úr sjálfri þér og ná að stöðva þá hugsun og snúa henni við. „Ég gerði mistök en tja, heppnast betur næst“. …

 

 

This entry was posted in Ferli hins jákvæða vilja and tagged , , . Bookmark the permalink.

Um Guðjón E. Hreinberg

Heimspekingur með áhuga á Stjórnmálum, Guðfræði, Heimspeki, Sálfræði, og Hundaþjálfun. Haldinn þeirri Íslensku sérvisku að skrifa um áhugamálin.

Comments are closed.