hreinberg.is » Þunglyndi

Rísandi alda sársauka, falin undir sléttu yfirborði
Það er vaxandi vanlíðan undir yfirborðinu hjá fólki þessa dagana. Fólk er hætt að treysta ríkiskerfinu, það fyrirlítur stjórnmálin, efast um trúverðugleika fréttamiðla, sér í gegnum rétttrúnað menntakerfisins, er unnvörpun að opna augun fyrir vanheilindum vísindanna.

Þó fólk taki ekki undir með þeim tugþúsundm okkar sem höfum jafnt og þétt stungið nálum í „sannleika meginstraumsins“ þá er fólk hvorki blint né heyrnarlaust. Þó fólk smelli á Like og Dislike t.d. á Túbunni, eða sýni engin viðbrögð, þá tekur það eftir og hugsar sitt.

Hver um sig einblýnir á að hugsa um sinn eigin hag – og eðlilega – enda er enginn sem ver réttindi þín eða hag þinn nema þú sjálfur í skinhelgum nútímafrumskógi, samfélagi lyga og skrums.

Þeir sem hafa svigrúm til að hugsa ögn lengra, líta yfir farinn veg sögunnar og sjá að hún hefur unnvörpum verið ofin í blekkingar og misvísanir. Líti þeir yfir landslag trúarheimsmynda og heimspeki og sést sömuleiðis lítið annað en afbakanir og tálsýnir.

Þó margt hafi skrifað verið sem stenst rýni þá getur verið yfirþyrmandi að sjá hversu margt í rétttrúnaði samtímans reynist byggt á hindurvitnum, skammsýni og hreinlega áróðurs. Fólk reynir að ýta þessum hlutum frá sér, eða rökræðir út á við að það standi með þeirri heimsmynd sem okkur er innprentuð. Jafnvel verður mörgum heitt í hamsi og berast mikinn á.

Það er hins vegar staðreynd sem ekki verður umflúin, að ekki er hægt að ljúga að undirvitundinni og hún hugsar sitt.

Á yfirborðinu virðist allt slétt og fellt, hver og einn sinnir því sem hann hefur tök eða vald á. Fólk reynir að hugsa vel um sig og sína, geyma sitt í hljóði, bíta á jaxlinn og halda reisn. Samt kraumar undir niðri og vaxandi vondeyfð og svartsýni gerir vart við sig.

Margir skynja þetta, sérstaklega fólk sem hefur þjálfað sig í andlegu næmi. Margir vilja beita aðferðum og úrræðum sem lærðar eru í ýmsum fræðum. Aðrir vilja bjóða lausn á borð við hópstarf eða trúarstarf, yfirleitt meinar það vel, en það hentar oft síður. Okkar samtími er alinn upp á einstaklingshyggju og neytendameðvitund og við viljum sjálf ráða hvaða næringu við veljum sem lausn á innri vanda.

Þúsundir fólks hafa varað við í hátt á aðra öld, að samtími okkar sé að kafna úr skorti á viðeigandi andlegu fóðri, margskonar rök eru fyrir því og mörg svör hægt að finna til lausna, fæst þeirra svara sem rista af varanlegri dýpt eru markaðssett opinberlega og því miður virka sum þeirra frekar öfgakennd.

Nóg er þó í boði fyrir fólk til að hefja leit að fóðri og mín reynsla er sú að þó margar blindgötur séu reyndar, þá er leitin sjálf gefandi og oft áhugaverðari en áfangastaðurinn.

Ég hef gætt þess – eins og kostur er – þegar ég ræði samtímamál, menningu, heimsmynd og trúmál, að minna fólk á að ég hef engan áhuga á því að veiða fólk til fylgislags við mína trúarheimsmynd. Held að það hafi skilað sér að markmið mitt er fyrst og fremst að gefa vitnisburð.

Ég er sannfærður um og hef verið í áratugi, að hver og einn verður að velja sér og rækta þá heimsmynd sem hentar hans innri gerð.

Ég vil þó minna á að í hverri fæddri sál er dulin rás sem enginn hefur aðgang að nema viðkomandi einstaklingur og skaparinn. Rás sem auðvelt er fyrir hvern sem er að opna fyrir með einfaldri hugsun, hvort sem viðkomandi trúir að hún virki eða ekki – það er ekki skilyrði.

Faðirinn bæði hlustar og svarar og það er óháð í hvaða flokki þú ert eða hverju þú trúir, og það kemur engum við hvort þú notar rásina. Hún er þín. Ég lofa því ekki að hún lækni þunglyndi eða gefi lífi þínu tilgang. Ég lofa því ekki heldur að þér muni líka svörin.

Ég get engu lofað þér, það er ekki mitt hlutverk. Hvað fer um rásina, eða á hvaða sniði, verði hún notuð, er þitt einkamál.

Hugurinn er háður aðstæðum og innri veröld
Síðla vetrar 2013 þurfti ég að vinna úr erfiðu máli og það lá þungt í. Ég neyddist til að færa gamla bílinn minn inn í garð svo hann yrði ekki dreginn daginn eftir.

Ég á garðinn en ekki götuna og þar sem búið var að klippa af honum hafði Heilbrigðiseftirlitið sett miða á bílinn.

Ég hafði tíu daga til að setja bílinn á númer eða fjarlægja hann að öðrum kosti. Ég dró það eins og ég gat að færa bílinn.

Hann situr alltaf í sama stæðinu úti í götu, eftirlitið veit að hann á heima þarna, hvaða máli skiptir hvort hann er númerslaus eða ekki þegar hann stendur í stæðinu sínu?

Vita þeir ekki að ég væri með hann á númerum ef ég hefði efni á því? Gátu þeir ekki bankað uppá þegar þeir fyrst klipptu af og tveim vikum síðar límdbu hótun? Eru samskipti okkar smáa samfélags orðin svo stofnanakennd og yfirborðsleg stífni? Eru samskipti orðin að fyrirhöfn?

Svona fóru hugsanir í hringi og bættust við aðrar. Þessi mánuður var erfiður og mjög naumt í veskinu. Þetta var afmælismánuðurinn því nú voru slétt þrjú ár síðan ég varð atvinnulaus. Ég var á launum til 1. apríl 2010 en ég var látinn hætta miðjan desember 2009. Allt það mál hefur sigið á sálin.

Sérstaklega var þungt í því ég var að ljúka við ritun bókar um það leiðindamál. Hún heitir „Varðmenn kvótans – Fiskisaga af einelti“ og er gefin út sem hljóðbók. Hún er einnig sniðin í prenthæft form (pdf) sem auðvelt er að lesa á skjá. Efni bókarinnar er mér þungbært en það var nauðsynlegt að ljúka henni.

Það er auðvelt að detta ofan í neikvæðni og svartsýni. Maður getur auðveldlega dottið ofan í pytt sjálfhverfra sífurshugsana sem draga mann bara meira niður.

Ekkert mun ganga, það þýðir ekkert að halda áfram, allt er gegn mér, og svo framvegis. Áður en maður veit af er maður fastur í gömlu neikvæðu hjólfari hugans sem dregur mann inn í fortíðarþjáningu sem átti að heita afgreidd.

Þess vegna er ég svo hrifinn af Ferlinu, og myndi hjálpa öðrum að nota það. Í morgun stóð ég úti í garði og sá ekki sólina. Skyndilega tók ég eftir því að hugur minn var ekki sá sem ég vil að hann sé. Andartaki síðar spurði ég sjálfan mig „hvernig höndlar Ferlið svona hugsanir?“

Þú telur þær blessanir sem þú hefur. Þú horfir ekki á það sem þig skortir eða var frá þér tekið.

Þú velur gleðipunkta í deginum, frekar en að ala á reiði.

Þú leyfir tímanum að vinna með þér, og minnir þig á tilgang þinn.

Þú ferð yfir gildi þín í huganum og rifjar upp hvers vegna þau skipta þig máli. Þú minnir þig á að þó heimurinn skilji þau ekki þá er hann ekki vondur.

Þú skoðar farveg þinn og horfir á þau skipti sem þú stóðst þig vel, þú gáir að þeim blessunum sem lífið hefur sent þér. Þannig rifarðu upp að þær verða fleiri. Þú sérð þá líka hvernig hjálpin var næst þegar neyðin var stærst.

Þú listar í huganum þá sem standa með þér, líka þessa leiðinlegu, og þakkar í huganum fyrir vinarþel. Þannig minnir þú þig á kærleikann og byggir hann upp.

Þú vakir yfir þunglyndishugsunum þínum og viðheldur þeirri venju að umbreyta þeim, þannig sigraðirðu þunglyndið.

Þú ferð yfir það sem þú getur gert og sættir þig við það sem þú getur ekki gert. (Æðruleysisbænin).

Þú rifjar upp þau atvik þar sem þú stóðst af þér áföll og ágjafir.

Þú hringir í vin ef ofangreint tekst ekki.

Ég gæti gert lista í allan dag en þessi dugar. Það sem mér finnst mest um vert er breytingin sem varð á innan við tveim mínútum og hefur varað í allan dag, utan smástund nú seinnipartinn að ég þurfti að hugsa mig um. Í það sinnið notaði ég aðra aðferð úr Ferlinu.

Ég var ekki þunglyndur lengur og var andartak að vippa mér upp úr hugarþeli depurðar. Hugarþel sem ekki er til komið vegna þunglyndis heldur vegna aðstæðna í apríl sem eru mér einstaklega erfiðar.

Þegar ég var verstur af þunglyndi fyrir tveim árum var næstum því vonlaust fyrir mig að berjast við þetta hjólfar nema með gríðarlegu taki. Innan árs hafði ég heilað þunglyndið svo að vonleysis hugur og sjálfsvígshugsanir linuðu takið og daglegt líf var aftur bærilegt. Jafnframt tókst að smíða hugsanir, eða hugsanalykla, sem virka til að halda mér við efnið.

Síðan þetta var hef ég breytt framsetningu ferlisins. Ég lagði niður lénið ferlid.is og er allt efni þess komið hingað á hreinberg.is auk þess sem Jákvæða ferlið er á ferlid.not.is – en það er hljóðbók um helstu þætti Ferlisins. Einnig hef ég samið sama efni á Ensku og gefið út á process.not.is en það kallast Process of Positive Willpower.

Þetta er eini sjálfshvatningarkúrsinn af sínu tagi í heiminum. Auk þess sem höfundurinn er ekki yfirborðsfínn, hálffullkominn í framsetningu og með svör við öllu, eins og snillingarnir í hinum kúrsunum. Hann ætlar heldur ekki að kenna nemendum sínum neinar uppskriftir: Heldur að kveikja sitt eigið ljós, síns eigin innra ferlis. Aðferð sem gerir þig kraftmeiri og jákvæðari en nokkur önnur aðferð getur gert.

Þessi grein var fyrst rituð í apríl 2013 og birt á gudjonelias.blog.is.

Einelti sigrað á fimm mínútum
Við lifum í samfélagi aumingjadýrkunar. Engum má líða illa og allir eiga helst að brosa allan daginn. Enginn má benda á neitt sem aflaga fer því þá er hann neikvæður.

Undir öllu þessu býr heiftarleg vanlíðan og þúsundir fólks streyma í lausnir – á borð við Ferlið – leitandi að andlegri næringu. Fáir þekkja kyrrð enda er hún bara leiðinleg, og þó þráir fólk kyrrð.

Börn skipta um skóla til að færast úr eineltis ástandi yfir í annað umhverfi. Undir hælinn er lagt að kanna hversu líklegt er að eineltið endurtaki sig. Enginn spyr sjálfan sig hvað það er í fari barns sem laðar eineltið inn í farveg þess.

Enginn má benda á barnið og spyrja hvað veldur. Enginn þorir að spyrja hvort það sé leiðinlegt barn eða dramakenndur einstaklingur sem þolir ekkert áreiti. Nei, það er ekkert að mér, og ekkert að barninu mínu.

Hið sama á við um okkur fullorðna fólkið nema við höfum þykkari skráp.

Ég þoldi einelti á uppeldis heimili mínu. Ég var alinn upp á heimili ömmu minnar sem var góð kona, en börnin hennar eða  föðursystkyni mín, var fólk sem bjó við djúpa innri vanlíðan og óvitandi tóku hana út á minni máttar. Það eru nærri fjórir áratugir síðan og þau myndu ekki gera í dag sem þau gerðu þá. Þetta er í grunninn vandað og gott fólk, en vanlíðan getur valdið vanlíðan.

Hefurðu hent steini í vatnspoll og horft á gárurnar?

Ennfremur hef ég í kjölfar míns dóms orðið skotspónn eineltis. Það ríkir mikil vanlíðan í okkar samfélagi og mikið af fólki lítur svo á að maður sem fellur á þann hátt sem ég gerði sé maður af því tagi sem leggja má í einelti. Svo langt gekk þetta ástand að ég var látinn víkja úr starfi hjá hinu opinbera vegna þess.

Sú saga á þó ekki erindi hér, enda hef ég nýlokið ritun bókar minnar „Fiskisaga af einelti” um þá atburði.

Ofangreint er tekið til þér til vitnis um að ég veit vel hvað einelti er, eðli þess, orsakir og afleiðingar. Ég veit einnig hvernig ég sem barn gat hrist af mér eineltið eins og hundur hristir sig nýkominn inn úr rigningu.

Ég þekki tvo batafarvegi eineltis sem hvergi er fjallað um í fjölmiðlum. Þeir eru svo uppteknir við að klappa fólki á bakið og hvetja samfélag óttans til aumingjadýrkunar að batafarvegur gleymist.

Í „Ferli hins jákvæða vilja” eru tvenn viðhorf notuð til að heila eineltis áhrif, og smíða skráp fyrir þolendur. Bæði viðhorfin eru kraftmikil og þeir sem hafa nýtt sér þau hafa allir breitt veikleika sínum í styrk. Þessi viðhorf er minnst á í Hljóðvarpi Ferlisins, en verða einnig kennt á námskeiðum og eftirfylgni.

Bréf frá sjálfsmorðingja
Í fáeinar vikur hefur bók verið að fæðast í hugskotinu – sem betur fer afar stutt – sem fjallar um sjálfsmorð og það samfélagsmein sem það er.

Orð mín sem betur fer afar stutt tekur til þess að ég ætlaði aldrei að skrifa hana. Hún fæddist nýlega sem hugmynd. Ég hef aldrei litið svo á að þetta efni sé inni á mínu áhugasviði. Auk þess sem mín bíða verkefni sem hug mínum hugnast betur.

En svo kom kvöldstund að efnið var albúið í huga mér og ég hristi það fram eins og það er.

Bókin er eingöngu skrifuð sem hljóðbók og eins og fyrri hljóðbækur mínar, má lesa frítt á útgáfu vef mínum not.is. Slóðin í bókina er media.not.is.

Sársaukaflótti
Við lifum í neyslusamfélagi sem elur okkur á hugsanabjögun. Við eigum að leysa öll vandamál, greina þau og afgreiða. Útskýring sé til við öllu og allt megi flokka niður. Fjölmiðlar eru gott dæmi um þetta: Allt er metið í tölum.

Við erum hætt að rýna í eigin hegðun og alin á að það sé tabú. Enginn má gagnrýna annan fyrir neitt og stutt í móðgunargirni hjá flestum. Rétt svo má gefa í skyn við einhvern að „eitthvað megi skoða nánar“ – en að segja viðkomandi að hann hagi sér eins og fávitier bannað.

Sársauki er algengur og þar kemur hugsanabjögunin skýrt fram. Við höfum til að mynda byggt upp menntakerfi sem gerir ráð fyrir vissu normi hjá öllum. Þeir sem eru utan við normið á einhvern hátt fá greiningu og ef lyfjastýring dugar ekki þarf sérúrræði. Orðið „úrræði“ er jafnvel orðið metafýsískt dulhyggju fyrirbæri.

Rétt eins og Guð er orðinn eign prestanna og fyrst þeir hafa brugðist, þá hefur Guð brugðist.

Heilu hjarðirnar af foreldrum eru komin inn í þann darraðardans að fela eigin fákunnáttu í barnauppeldi á bak við greiningar og gagnrýni á úrræði sem duga skammt. Engan má gagnrýna foreldrið hvernig það elur upp næstu kynslóð, því þá er troðið á hans eða hennar heilaga rétti.

Það er eins með fólk sem leitar í sjálfshjálparhópa, tólf spora samtök, sálfræði og geðlæknisúrræði. Fleiri úrræðategundir mætti nefna. Dugar að fullyrða að átta af hverjum tíu einstaklingum, fullorðnum, sem leitar sér aðstoðar eða leiða til að lækna eða hverfa frá sársauka, eru að leita sams konar leiða og fyrr er nefnt.

Nú er ekkert að því að leita einfaldra leiða til að heila sig frá sársauka. Það er jú sama hvaðan gott kemur.

Að flýja innri sársauka er þó eins og að flýja sjálfan sig. Þegar ég nota þetta orð á ég við þegar við hikum við þann sársauka að breyta egóinu og leggja það til hliðar. Flestir sem leita leiða til að lækna sig frá sársauka þora ekki, eða vilja ekki af þvermóðsku að leggja egóið sitt til hliðar.

„Skoðanir mínar eru réttar, viðhorf mín eru rétt, persóna mín er rétt“! Hugsanir af þessu tagi eru krabbamein hugans í nútímanum.

Okkur er uppálagt að sársauki sé óþægindi, við séum fín eins og við erum, og sársauka megi lækna með skyndilausnum. Að við sjálf séum gull og gersemi, óbreytanleg og hugsanir okkar eða skoðanir heilagar – svo fremi þær skaði engan.

Ferli hins jákvæða vilja virkar ekki í þessari hugsun. Þú getur eingöngu tileinkað þér Ferlið ef þú getur séð hvernig hugsanir þínar um sjálfa(n) þig eru þér skaðlegar. Hugsanir þínar og skoðanir eru jú bara skoðanir. Skoðanir smíða egó, en þú ert á bak við egóið. Sjálfið þitt er eilíft. Kletturinn sem egóið hvílir á og það er einmitt þetta sem Jesú gaf í skyn þegar hann varaði okkur við að byggja húsið á sandi.

Margir sem leita sálarhjálpar og sjálfsþroska eru á flótta frá sársauka, frá skilaboðum sársaukans. Sem er eins og að fara í fjallgöngu og halda að engar verði harðsperrur. Auðvitað mátt kaupa þér jeppa og keyra á fjallið, en það styrkir ekki skrokkinn þinn.

Ferlið kennir nálgun sem er mun skjótvirkari og árangursríkari, ekki óskyld fornvisku frumbyggja Ástralíu: Þú notar drauma þína og sársauka til að finna hvað er undir eigin yfirborði.

Um leið og þú veist hvað er í þínum sálardjúpum og samþykkir það, í stað þess að lækna eða fjarlægja, þá umbreytist það. Þú umbreytist með. Þannig breytist veikleiki þinn í styrk.

Sá sem þetta skrifar var í sömu sporum. Egóið hans var honum heilagt, skoðanir hans voru honum heilagar og trúin hans hafin yfir allan vafa. Þegar hann þorði að fleygja þessu á eldinn, fann hann hvað var á bak við, og fann kjarnorkustyrk í sjálfum sér. Honum er ekkert ómögulegt í dag og hann vill ekki fá gamla egóið til baka.

Óskaplega einmana
Fólk er einmana, líka þeir sem hafa félagsskap. Enda engin furða, enginn hefur tíma til innihaldsríkra samskipta. Í dag eru samskipti mikið í farvegi smásetninga á Facebook og þegar spjallað er saman er það oftast í athugasemdum við sjónvarpið. Kannastu við fólk sem tekur „uppáhalds sjónvarpsþátt“ fram yfir samskipti við góðan vin?

Talandi um sjónvarp. Er algengt að fólk ræði saman með sama hætti og í sápunum?

Þegar barist er við kvíða, þunglyndi, depurð, og sjálfsefa fæðist einmanaleikinn. Það hringja fáir, koma fáir. Þegar einhver hringir eða kemur er það ekki alltaf þeir sem þú vilt tala við, heldur fólk sem er svipað ástatt fyrir.

Fólkið sem þig langar að eiga samskipti við hefur engan tíma – enda upptekið af einhverju skemmtilegra – og þú ert svo einmana að þeir sem þú vilt síður rækta samskipti við hefur aukinn aðgang að þér því „leiður er betri en enginn.“

Smám saman dofnar yfir félagshringnum, enda er maður löngu hættur að hafa eitthvað skemmtilegt að tala um. Fólk sér deyfðina, efann og hikið, þó maður segi fátt, og einmitt að segja fátt er vont.

Ég var aldrei einmana hér áður, ég var alltaf upptekinn í skemmtilegum hugðarefnum og fólk sótti frekar til mín en öfugt. Ég var þessi kraftmikli og létti sem var sífellt að. Ég var í skemmtilega hópnum. Þar til þunglyndið greip mig heljartökum og atvinnuleysið eyddi upp efnahagnum.

Góðviðris vinir hafa ekki tíma né dug fyrir þunglynda vini. Þú verður að hafa efni á einum golfhring eða stuttri jeppaferð. Spjallvinir sem auk þess eru vanir að viðra eigin vandamál hafa enga löngun í að heyra þín vandamál, þú átt áfram að hlusta á þeirra. Þú hefur kannski aldrei kunnað að tala um vandamál? Ef þú ert vanur að fá steikina með rabbarbarasultu, þá þíðir ekkert að bjóða þér rifsberjasultu í staðinn er það?

Margir vina minna höfðu í gegnum tíðina sagt mér frá þessum einmanaleika. Fyrsta árið í þunglyndi fékk ég að kynnast hvað þeir meintu. Fyrr skyldi ég þá ekki. Ég kunni ekki að tala um minn vanda, kunni ekki að teygja mig til bjargar. Ég reyndi að læra „að tala um  málin“ en við hvern? Það er ekki hægt að tala við hvern sem er um vanda sálarinnar.

Enginn hringir. Enginn kemur í heimsókn. Enginn vill heyra hvernig þér líður. Enginn vill heyra hvernig þú raunverulega hefur það. Þó spurt sé „hvernig hefurðu það“ er vænst annarra svara en „aldrei liðið verr!“ Veistu hvað er mikið af fólki um allan bæ sem líður svona? Félagslega einangrað og einmana – fast í gömlum hjólförum hugans.

Ég fann leiðina út úr einmanaleika þegar Ferlið fann mig – ekki strax en furðu fljótt. Ég lærði að vinda ofan af þungum hugsunum – komast upp úr hjólfari hugans – og sjá annað fólk rétt. Ég lærði að skilja hvernig ég hafði séð annað fólk rangt. Augu mín fóru að opnast fyrir öðrum og ég fékk áhuga á því sem ég sá. Ég lærði samskipti upp á nýtt. Lærði að finna þá sem geta – og vilja eiga – innihaldsrík samskipti, og hafa gaman af hinum.

Undanfarið hef ég átt í miklu dýpri efnahagslægð en ég átti fyrsta árið. Ég ætla ekkert út í þá erfiðleika nánar – þú nennir því ekkert – enda nenni ég því ekki.Það merkilega er allt annað:

Ég er ekkert einmana!

Meðan ég hripaði niður þessa punkta heyrði ég frá tveim vinum. Það líður ekki dagur án þess að ég heyri í góðum vin – jafnvel góðviðrisvin. Allir mínir vita hvað ég er að berjast við, allir vita þeir að ég mun klifra yfir það. Allir vita þeir hvernig ég nota „ferli jákvæða viljans“ – sumir þeirra nota það.

Það er ótrúlegt en satt: Að sigrast á þröskuldum lífsins er viðhorf, og veistu hvað: Það má nota rifsberjasultu, hún er fín hafi maður rétta viðhorfið.

Kvíði
Brot úr bókinni „Ferli jákvæða viljans“ um úrræði við kvíða:

Sá sem missir allt verður hræddur. Að missa heimili sitt, eða fjölskyldu sína eða starfsframa sinn, eða félagslíf sitt. Að verða fyrir ástarsorg, að missa aleiguna og standa eftir einn. Að verða fyrir einelti í starfi og missa starfið vegna afstöðu fólks til fortíðar sem þú hefur unnið úr og verða fyrir aðkasti víðar af sömu sökum. Vera án félagslífs, án fjölskyldu, án eigna, án starfs, og eiga ekkert eftir nema vonina.

Vonina um að hlutir skáni, vonina um að trúin á eitthvað gott – gæti verið Guð eða maður sjálfur – sé ekki alveg farin. Vonina um að það sé þess virði að lifa annan dag, að eiga bara þessa von eftir. Að hafa heilsuna, eiga hundinn sinn, en hafa ekkert meir. Fá ennþá stað til að sofa á, en hafa ekki einu sinni bíl til að fara í innkaupaferð á, sækja um tugi starfa og fá ekki einu sinni viðtal. Hafa auk þess upplifað – að vísu verðskuldaða – gistingu á sérhóteli hins opinbera.

Allt þetta gekk yfir mig á réttum tveimur árum. Talað er um í sálfræði og félagsráðgjöf að bara eitt af þessum áföllum sé nóg til að fólk upplifi djúpa streitu og kvíða. Ég fékk allan pakkann.

Það komu dagar sem ég var að bugast. Það komu dagar sem ég var kominn að endimörkunum og sá endalokin í hyllingum en vildi ekki skilja hundana mína eftir í reiðuleysi. Ég veit vel hvað kvíði er.

Þegar ég loksins fékk lítið tækifæri til að vinna lítið verkefni og afla mér smá bjargráða var ég búinn að missa allt og var orðinn fullur af kvíða. Svo margar árásir höfðu verið gerðar á mína tilveru og mína persónu, að ég var jafnvel hættur að sjá þær árásir sem ég hafði hrundið. Þær virtust svo léttvægar.

Kvíðatilfinningin þegar ég fór að sinna þessu litla verkefni. Að skilja hundana mína eftir heima í búrunum sínum, nágranni minn sem er heimavinnandi fylgdist með bæði hávaða í íbúðinni og umferð í götunni: Ég vissi að ef eitthvað kæmi fyrir myndi ég vera látinn vita. En ofboðslegur kvíðinn í hvert sinn sem ég ók að heiman – hvaða árás yrði gerð á heimili mitt meðan ég væri að heiman?

Það hefur verið grýtt múrsteinum bæði í húsið og bílinn. Það er engin ímyndun að heimili mitt gæti orðið fyrir árás.

Ég er manneskja sem elskar að eiga og þjálfa hunda. Ég vil ekki fara í golf. Ég stunda útivist með hundum og þeir eru þjálfaðir til vinnu. Tveir þeirra eru meistarar í leit að týndu fólki og aðrir tveir góðir í leit að földum efnum. Þeir eru það eina sem er eftir í mínu lífi sem er einhvers virði. Jafnvel fjölskyldan horfin.

Meðan ég skryppi að heiman væru þau berskjölduð fyrir grimmd samfélagsins, og það veit sá sem allt veit að ég hef kynnst því. Ég hafði gleymt að heimili þitt er heilagt í augum löggjafans. Ég var bara búinn að kynnast því oft að maður á sakaskrá hefur ekki sama rétt og aðrir – ég var hættur að treysta og hafði ástæðu til.

Ég var hættur að sjá öryggið í Íslensku samfélagi. Gott og virðingarvirt fólk búið að beita mig meðölum þessa, fólk sem ekki gerir flugu mein ef á það er horft úr fjarlægð, fékk útrás fyrir einhverjar hvatir sínar á mér og þótti það réttlátt.

Kvíðinn og nagandi tilfinning ríkti í mér hvern dag þegar ég þurfti að bregða mér að heiman.

Ég hugsaði með mér „það er einhver lexía hér“ eins og Ferlið hefur kennt mér þá er lexía í öllu. Allt er tækifæri. Ég fór yfir alla þætti í huganum. Ég var búinn að setja dýrin í öryggisbúr, læsa hurðinni, setja lokur á glugga, setja upp öryggismyndavél sem tekur upp hreyfingar innandyra og vistar á tölvu.

Ég hafði gert allt sem í mínu valdi stóð. Ef eitthvað kemur fyrir á meðan ég er að heiman, þá er það eitthvað sem gerist og ég get ekkert í því gert. Svo segir í æðruleysis bæninni: „Guð viltu hjálpa mér að breyta því sem ég get breytt, styrk til að sætta mig við það sem ég get ekki breytt, og vit til að greina þar á milli.“

Ég sagði því við sjálfan mig „hvað myndi gerast ef eitthvað kæmi fyrir dýrin mín eða þau frá mér tekin eins og flest annað?“

Þar sem ég var að keyra að heiman og hugleiða þetta kom svarið um hæl. „Ég myndi byrja upp á nýtt, byrja aftur með hunda og halda áfram að þjálfa þá. Ég veit hver ég er, hvaðan ég kem og hvert ég stefni. Enginn getur tekið það frá mér.“

Með þessar hugsanir að leiðarljósi hvarf kvíðinn svo ég gat farið að heiman og glímt við það sem gera þurfti. Ég gat þannig sett traust mitt á Guð. Það eru vissulega til ill – eða kærleikslaus – öfl í veröldinni og það veit Guð að þau hafa sótt að mér.

Kannski átti ég það allt saman skilið, kannski bara brot af því, kannski er bara sótt að fólki sem trúir á algóðan Guð. Þau halda kannski áfram að sækja að mér, kannski ekki. Þau hafa ekki rúið mig heilsu né starfskrafti. Þau hafa ekki náð tökum á viðhorfum mínum og getu minni til að velja hugsanir mínar.

Umfram allt: Þau hafa ekki skaðað von mína, trú, getu eða vilja til að taka ákvörðun um viðhorf mín afstöðu og hugsanir. Ég ákvað þarna að taka rétta afstöðu og nota hana sem tæki til að vinna bug á kvíða. Auðvitað kemur kvíði reglulega upp en í hvert sinn sem hann kemur, og jafnvel þó hann dvelji við dögum saman, þá snýst ég til varnar aftur. Í hvert sinn verður afstaða mín öflugri.  Fyrir fáeinum árum fékk ég heiftarleg kvíðaköst daglega, árum saman. Í dag er allur kvíði horfinn.

Ferli hins jákvæða vilja
Nútímalíf er skemmtilega einkennilegt. Þunglyndi er daglegt líf margra. Reiði tröllríður heimilum. Vonleysi er viðvarandi víða. Yfirborðsmennska hefur meira vægi en gömul gildi. Draumar breytast í vonbrigði. Dómharka sjálfsögð en fyrirgefning erfið.

Afar okkar og ömmur þurftu bréfaskriftir – sem tóku vikur – til samskipta við ástvini erlendis. Við höfum SMS og email. Fyrir einni kynslóð tók dagleið að ferðast frá Reykjavík til Akureyrar, á vondum vegum sem kallast þvottabretti. Í dag er þetta í skottúr. Lífið er auðvelt í dag, en við erum ekkert glaðari. Þvert á móti, fólki finnst lífið erfitt.

„Ferli hins jákvæða vilja“ táknar einfalt, kraftmikið viðhorf til sigurs og sáttar.

Árangur í íþróttum krefst ferlis æfinga og aga. Að líða vel og viðhalda jákvæðni sama á hverju gengur krefst viðhorfs. Að glíma við hvers kyns vanda, krefst vilja.

Að rísa úr þunglyndi krefst viljastyrks. Að mæta mótlæti með jákvæðni krefst viljastyrks. Að breyta vonbrigðum í drauma sem rætast, krefst trúar sem þarf að rækta. Allt þetta byggist á hugsanaferlum til sigurs. Þannig er nafnið til komið.

Að rækta jákvæð viðhorf, að sjá lausnir þar sem aðrir sjá hindranir, að breyta veikleika í styrk. Þetta er ekki gert á einni helgi, né með einni bók. Þetta er gert í styrku ferli.

Ferlið er einföld aðferð til að skapa samfélag venjulegs fólks. Koma sér í gott form, og halda því. Nýta sér jákvæðan vilja til að hámarka vellíðan og árangur. Eiga gott samfélag við gott fólk.

Ferlið er einfalt námskeið og bætir við með eftirfylgni. Ferlinu líkur seint, því vellíðan og árangur er ávanabindandi. Á námskeiðinu lærast mjög einföld viðhorf til að stjórna eigin vellíðan og sjá drauma þín rætast

Upplýsingar í síma 778-1296

Einfalt og skilvirkt.