hreinberg.is » Kyrrð

Virðing vekur virðingu.
Eins og við höfum flett ofan af, síðan Þjóðveldið var endurreist í júní 2013, þá hélt það velli til 1662, að því var vikið til hliðar af viðbjóðslegu og sönnuðu samsæri.

Þegar ég samdi bókina „Endurreist Þjóðveldi 2013“ óraði mig ekki fyrir hversu mikla dýpt ég hafði dottið niður á, ég hafði fátt til hliðsjónar annað en draum Fjallkonunnar, örfáar fálmkenndar sýnir, sterka siðferðiskennd og hugmyndir um menningu okkar sem ég hafði lært í gegnum árin.

Eftir þetta kynntist ég bókum Barða Guðmundssonar, Jóns Aðils og Lúðvíks Ingvarssonar; Uppruni Íslendinga, Gullöld Íslendinga og Goðorð og Goðorðsmenn. Sumar þessara bóka var ég byrjaður að lesa um svipað leyti og ég lauk minni eigin.

Eftir að ég hafði lesið þær, auk ýmissa annarra brota og smærri bóka, sá ég svo ekki varð um villst að Þjóðveldið var dýpra og stærra fyrirbæri en mig hafði órað fyrir.

Í bókinni Endurreist Þjóðveldi hélt ég því fram að fyrra Þjóðveldi hefði haldið velli í 330 ár en í dag vitum við að það hélt velli í 740 ár. Við höfum aukinheldur síðustu tvö árin séð fleiri brotabrot koma undan huliðshjálmi þeirrar blekkingar og fyrirlitningar sem Þjóðfélagsverkfræðingar Lýgveldisins hafa breitt yfir það með kerfisbundnum hætti allt síðan Ari Fróði hóf sögu-umritun sína á tólftu öldinni – og með samningu Grágásar sem fyrst var rituð um svipað leyti.

Smám saman er þessi hugarmynd sem hið aldna Þjóðveldi – sem um margt má vel kalla ljósið úr norðri, og með réttu – að birtast okkur og skref fyrir skref rekum við okkur á að þó orðræða okkar og starf virki kjánalegt eða skrýtið í augum samtímamanna okkar, geta þeir engu svarað fullyrðingum okkar og uppgötvunum.

Smámsaman hefur sýnin skýrst og er um margt langt frá því að vera orðin fullskýr. Til að mynda hefur mér orðið ljóst á síðustu misserum, varðandi skáskjót mitt varðandi Ljósið úr norðri, að Nostradamus bendir á að að ljósberi þessa spádóms fæðist á Fimmtudegi; dagurinn sem það var stofnað fyrst og dagurinn sem það var stofnað endurreist og dagurinn sem þinghelgi Allsherjarþings var ætíð sett.

Í mínum augum er Þjóðveldið byggt á fíngerðri sýn sem ég hef oft hjúpað í heitinu Skammtalýðræði; þar sem tveir eða fleiri koma saman, bera saman skoðanir sínar, gera samkomulag um þá skilningstungu sem þeir muni nota – og þar af leiðandi aðferð – um bæði að ná niðurstöðu í skoðanaskiptum sínum og samkomulag um endurvakningu þeirrar samræðu.

Í rauninni, aðferð til að geta unnið sjálfum sér til heilla og saman samfélagi sínu til heilla, þar sem allir hafi rödd og spilling þrífist illa.

Um margt byggist þessi sýn á trú. Þá meina ég ekki hina hefðbundnu trú sem rætt er um varðandi trúarbrögðin sem einblýna (yfirleitt) á einhvers konar yfirskilvitlegar verur. Heldur meina ég trú á að líf sé þess virði að vera lifað þegar maður gefur því merkingu sem sé stærri manni sjálfum, trú á að allir eigi möguleika á – og einhverja hvöt – til að nálgast slíka niðurstöðu með sjálfum sér, og þá trú að samfélag sem sameinast um að einblýna á það sem er til hagsældar öllum og að sniðganga þá þætti sem miður reynast, muni verða samfélagi, landi – og að því marki sem trúin nái svo vítt; vættum lands – til góða.

Slík sýn tiltekur, og það er bundið í stjórnarskrá okkar, að allir landsmenn án undantekningar eiga erindi í Þjóðveldi og eru þar velkomnir og að ekki er hægt að víkja þeim úr því. Þetta merkir einnig að við sem erum boðberar slíkrar sýnar, þurfum að sýna henni þá virðingu að hún sýni öðrum – jafnvel fólki sem við kunnum að fyrirlíta, eða fólki sem kann að fyrirlíta okkur sem einstaklinga – að sú virðing standi traustum óbifanlegum grunni.

Því virðing vekur virðingu.

Ég sjálfur reyni eftir fremsta megni að halda trúmálum mínum utan við orðræðu mína um Þjóðveldi. Líklega geri ég einhver mistök í þeirri viðleitni en ég reyni það. Vel að merkja, vefsíða Þjóðveldis er á “nyttland . is” og þar er engu efni ofaukið, ekkert blogg, engar einkaskoðanir, ekkert aukreitis, grúppan okkar á Facebook er aðeins grúppa fólks sem er í Þjóðveldinu eða áhugasamt um það.

Til er Þjóðveldisfólk sem er ekki á Facebook og lifir ágætu lífi utan tölvunnar. Alls kyns fólk er á Netinu og allskyns vettvangar til að tjá sig, til að mynda er fólk í okkar litlu grúppu sem tekur þátt – eða hefur tekið þátt – í Pírataspjallinu, svo dæmi sé tekið. Allir vita stjórnmálaskoðun mína á Píratahópnum, en ég held að ég hafi (vonandi) náð að halda þeirri skoðun utan við grúppuna.

Að lokum vil ég minna á eitt lítið atriði sem í mínum huga vegur þyngra en orðum tali.

Menn og konur í gegnum aldirnar hafa fórnað ómældum tíma og erfiði til að tryggja að þekking, skilningur, innsæi og mýtur, hafi borist okkur svo við getum endurreist þá hugsun sem (að mínu mati) er ein sú göfugasta sem mannsandinn hefur fætt.

Ekki síst má gleyma tugum, og jafnvel hundruðum fólks – hugsanlega fleirum – sem hafa látið lífið vegna trúar sinnar á Þjóðveldið og vægi þess. Ég hef ekki alltaf rætt á þeim nótum sem hér kemur fram. Eins og ég hóf pistilinn á, þegar ég hóf baráttuna 10. desember 2012; var ég bara krakki sem vissi ekki neitt.

Heiðríkja hugarlandsins
Eins og Álfar vita og ýmsa mennska grunar, hef ég dregið úr stöðuuppfærslum um gang mála hérlendis og erlendis og snúið mér meira að málefnum sem máli skipta fyrir Sálina og fyrir vikið ekkert að fylgjast með fréttamiðlum svo þeir æsi ekki upp víkinginn í karlinum.

Síðustu tvo daga hef ég þó skimað almenna vegginn öðru hvoru og hvaða fréttum er verið að deila áfram. Sé mér til undrunar að nákvæmlega ekki neitt hefur breyst, hvorki í aðferðum spunaglundursins né skilningsfálmi hinna dáleiddu.

Hvers vegna í ósköpunum vill enginn spyrja vandaðra spurninga? Án slíkra koma engin svör. Taktu eftir að ég sagði ekki „réttra spurninga“ né heldur „rétt svör.“ Því hvorugt er til.

Jedúdamía – ég er feginn að vera kominn heim í heiðríkju andans, út úr moldviðri nútíma hugarfars og svima. Í fína postulínsturninn þar sem farið er úr sokkunum þar sem maður er staddur.

Hugarmynstur nútímans
Fyrir meira en tveim árum hætti ég að horfa á sjónvarp með öllu. Reyndar hef ég slakað örlítið á síðustu mánuði og lít á stöku bíómynd, líklega tvisvar til þrisvar í mánuði. Mig langar í kjölfarið að skauta smávegis út á hálan ís með kenningu sem kraumar í mér.

Upphaflega átti þetta sjónvarpslausa tímabil aðeins að vara frá ágúst mánuði og til jóla. Ástæðan var einföld, mig langaði að lesa meira og ég vildi líka ryfja up hvernig þetta var í sveitinni í gamla daga hjá ömmu.

Ég leit þetta svo að um stutt tímabil væri að ræða en fyrstu vikurnar fannst mér sjónvarpsleysið erfitt. Ég hins vegar dreif mig á bókasafnið mánaðarlega og tók þrjátíu bækur í hvert sinn, allt frá þungu efni til skálldsagna og jafnvel myndabóka og léttmetis.

Þannig liðu vikurnar að ég las og las á kvöldin oft fram í myrkur. Rétt eins og í anda ömmu minnar dró ég það í lengstu lög að kveikja á raflýsingum og hafði þær sem fæstar á kvöldin.

Smám saman fór ég að njóta kyrrðar á máta sem ég hafði ekki upplifað frá því ég var krakki í sveitinni hjá ömmu og eftir því sem þetta ágerðist varð ég háður kyrrðinni. Þegar ég kíkti í heimsókn til vinafólks varð ég oft þreyttur eftir smátíma af raflýsingum út um allt og stanslausum glym í sjónvarpinu.

Í fyrstu hafði ég áhyggjur af því að ég yrði fljótlega enn meira utangarðs í nútímanum, og er ég sammála þeim sem þykir nóg um en hver og einn flýgur eins og hann er fiðraður.

Svo fóru augu mín að opnast, en það tók sem fyrr segir fáeinar vikur.

Hið fyrsta sem ég tók eftir er að samræður fólks voru orðnar í stíl við það sem sést í sjónvarpinu. Fólk hlustaði minna hvort á annað en virtist bíða þess að komast að. Fyrir kom að ég sá tvær samræður í einu, þar sem viðmælendur skiptust á að komast að með sinnhvorn þráðinn og sem minnst gefið út á það sem hinn sagði. Báðir heyrðu þó vel það sem hinn sagði.

Jafnhliða þessu tók ég eftir þreytu sem kom yfir fólk ef umræðuefnið var of innihaldsríkt og þar með „of djúpt“ eða „of leiðinlegt“. Þar sem ég er alinn upp á sveitaheimili þar sem bækur voru lesnar og málefni rædd þá þótti mér þetta viðhorf skrýtið en tímarnir breytast og mennirnir með.

Næsta sem ég tók eftir var aukin óþolinmæði með margt í samfélaginu. Hér áður hafði ég séð að hún hafði aukist en ekki séð samræmið. Þar sem ég var laus úr hringiðu og hraða sjónvarps ímynda fékk ég fjarlægð sem kennd er við „glöggt er gests augað“. Því ég sá samræmi við hraða og óþolinmæði fólks við þann hraða sem er á skjánum og á *zappi* á milli sjónvarpsrása.

Þriðja sem ég tók eftir var sjónglymrið! Jú, þetta er eins konar nýyrði. Því augu okkar og heili er vant því að sama myndin breytist hægt. Við erum vön því t.d. á ferð úti í náttúrunni eða við eldhússamræður að níutíu hundruðustu myndarinnar er föst eða breytist ekki meðan aðeins örlítið brot hreyfist.

Landslagið er hið sama en færist örlítið nær.

Eldhúsið er hið sama en varir og hendur viðmælenda hreyfast.

Þannig séð er heilinn vanur að geta unnið úr mynd sem er því sem næst kyrrlæg með smáum breytingum og stöku sinnum taka á sig stökk svosem í hröðum boltaleik en þó er hið sama uppi á teningnum í boltaleik nema fleiri hlutir breytast í kyrrmyndinni.

Ekki ósvipað á við um hljóð. Heilinn vinnur úr stöðugum tónum umhverfisins með smá umbreytingum hér og þar en í dag er kominn stöðugur glymur af tónlist, setningum og alls kyns smellubrellum eða hvaðeina í umhverfið. Þó ég sem manneskja hafi vanist því sem tækin framleiða þá er ekki víst að lífveran hafi gert það og því aukist streita – eða innri ókyrrð – og viss tómleiki.

Ég nota orðin „viss tómleiki“ því við fáum mikið af þekkingu, viðhorfum, skoðunum og nýjungum í gegnum hljóðvarp og sjónvarp en ekki svo mikinn tíma til að vinna úr innihaldi þess. Þannig líður hver dagurinn á ógnarhraða ímyndana en lítið ráðrúm til að vinna úr en tómleikinn stafar af þeirri tilfinningu að hafa misst af einhverju.

Ég nefni lítið dæmi vissum tómleika til skýringar. Segjum að ég horfi á spennandi sjónvarpsþátt á milli átta og níu og í honum kemur fram efni sem mig langar að hugsa um. Nema á milli níu og tíu er annar spennanni þáttur sem hefur þau áhrif að hugmyndir þess fyrri gleymast eða falla upp fyrir vegg. Svona heldur keðjan áfram koll af kolli.

Þetta síðastnefnda þótti mér of dýrt. Ég er þannig gerður að ég vil vinna úr þeim hugmyndum sem ég fæ og var ein af ástæðum þess að ég var að draga úr glápinu, að ég vildi meiri tíma til að vinna úr hugmyndaflæði en mér finnst gaman að pælingum.

Nú kemur að fjórða atriðinu sem ég tók eftir þessa þrjá mánuði sem hafa orðið að tæpum þrjátíu.

Eftir því sem ég naut kyrrðar meira, las meira og samræðuhæfileikar mínir endurfæddust vaknaði dálítið annað. Mín eigin skapandi ímyndun vaknaði, ímyndunaraflið endurfæddist. Þetta gerðist smátt og smátt eins og eitthvað sem vaknar af dvala. Eftir því sem fjarlægðin við glápið jókst sá ég mynstrið, hvernig sjónvarpstækið hafði komið í stað hinnar meðfæddu þarfar mannshugans til að láta sig dreyma.

Ekki bara að sjónvarps veröldin hafi leyst ímyndunaraflið af hólmi heldur hafði veröld þess verið betur framleidd en mín eigin hér áður: Fallegra fólk, þægilegri söguþræðir, eftirsóknarverðari ímyndir af húsum, bílum, möguleikum og fleiru.

Nema nú hafði mín eigin fæðst að nýju og í þetta sinnið vann ég með hana og naut þess. Stundum sleppti ég því að setjast niður með bók heldur lagði mig smástund seinnipartinn, lokaði augunum glaðvakandi, og lét hugann reika. Stundir sem ég í dag get ekki verið án og hafa auðgað líf mitt.

Kenningin sem ég lofaði í upphafi er ekki langsótt en kann að þykja dálítið sláandi fyrst.

Eftir því sem tíminn hefur liðið hefur ein hugsun sótt á mig. Þegar hugur situr við sjónvarpsskjá og tekur við í sífellu þá smám saman minnkar gagnrýni hans á það sem hann sér og heyrir því hraði þess er mikill og nýtt kemur svo fljótt.

Einnig gerist annað sem vitundin tekur ekki eftir en tengist kyrrmyndinni sem áður var nefnd. Við tökum ekki eftir því alla jafna en myndin á skjánum uppfærist fimmtíu sinnum á sekúndu og það þreytir hugann og minnkar mótstöðu hans. Þannig virkar þetta að manneskja sem kemur þreytt heim úr vinnu og ætlar að slaka á við sjónvarp hún hvílir líkamann en hugurinn heldur áfram að vinna.

Höfum í huga að yfir áttatíu prósent heilans er nýttur í hið ósýnilega allt frá hjartslætti í það að vinna úr hljóð og mynd. Af þessu fer áttatíu prósent í hljóð og mynd!

Hér kemur kenningin: Í sjónvarpsþáttum og framleiddu efni ríkir ákveðið mynstur sem hefur áhrif á hugsanamynstur. Ekki að það heilaþvoi fólk, heldur minnkar mótstöðu gegn mötun og mótar hugsanamynstur, auk þess að auka við síþreytu og jafnframt koma því inn hjá fólki hvar það leiti lausn sinna mála hversu innantómar þær lausnir eru.

Langsótt? Kannski.

ps. Sjónvarpslausir fimmtudagar var skapað fyrir fólk sem hefur áhyggjur af ofnotkun sjónvarps.

Laumglymur andans
Á milli ellefu og hálfeitt á kvöldin kemur kyrrð. Þetta finnst best í bæjum og þorpum. Hið sérstaka við þetta er að umferðarniðurinn þagnar mun fyrr, eða á milli hálfníu og hálftíu.

Fyrst niðurinn úr umferð er löngu horfinn, þegar kyrrin kemur, þá hlýtur að vera annað á ferð. Tvennt kemur til greina að mínu mati.

Annars vegar fara flestir til náða á fyrrgreindum tíma. Líklega eru þrír fjórðu mannfjöldans sofnaðir í lok þessa tímabils.

Sem merkir tvennt: Annars vegar að kyrrð er komin á hugsanaflækjur fjöldans og hins vegar að samræðuflaumur í rafbylgjum farsíma einnig.

Getur það verið að þetabylgjur heilans, og aðrar ókannaðar bylgjur, nemi glym þegar síminn í vasanum ræðir við símamöstrin?

Óskaplega einmana
Fólk er einmana, líka þeir sem hafa félagsskap. Enda engin furða, enginn hefur tíma til innihaldsríkra samskipta. Í dag eru samskipti mikið í farvegi smásetninga á Facebook og þegar spjallað er saman er það oftast í athugasemdum við sjónvarpið. Kannastu við fólk sem tekur „uppáhalds sjónvarpsþátt“ fram yfir samskipti við góðan vin?

Talandi um sjónvarp. Er algengt að fólk ræði saman með sama hætti og í sápunum?

Þegar barist er við kvíða, þunglyndi, depurð, og sjálfsefa fæðist einmanaleikinn. Það hringja fáir, koma fáir. Þegar einhver hringir eða kemur er það ekki alltaf þeir sem þú vilt tala við, heldur fólk sem er svipað ástatt fyrir.

Fólkið sem þig langar að eiga samskipti við hefur engan tíma – enda upptekið af einhverju skemmtilegra – og þú ert svo einmana að þeir sem þú vilt síður rækta samskipti við hefur aukinn aðgang að þér því „leiður er betri en enginn.“

Smám saman dofnar yfir félagshringnum, enda er maður löngu hættur að hafa eitthvað skemmtilegt að tala um. Fólk sér deyfðina, efann og hikið, þó maður segi fátt, og einmitt að segja fátt er vont.

Ég var aldrei einmana hér áður, ég var alltaf upptekinn í skemmtilegum hugðarefnum og fólk sótti frekar til mín en öfugt. Ég var þessi kraftmikli og létti sem var sífellt að. Ég var í skemmtilega hópnum. Þar til þunglyndið greip mig heljartökum og atvinnuleysið eyddi upp efnahagnum.

Góðviðris vinir hafa ekki tíma né dug fyrir þunglynda vini. Þú verður að hafa efni á einum golfhring eða stuttri jeppaferð. Spjallvinir sem auk þess eru vanir að viðra eigin vandamál hafa enga löngun í að heyra þín vandamál, þú átt áfram að hlusta á þeirra. Þú hefur kannski aldrei kunnað að tala um vandamál? Ef þú ert vanur að fá steikina með rabbarbarasultu, þá þíðir ekkert að bjóða þér rifsberjasultu í staðinn er það?

Margir vina minna höfðu í gegnum tíðina sagt mér frá þessum einmanaleika. Fyrsta árið í þunglyndi fékk ég að kynnast hvað þeir meintu. Fyrr skyldi ég þá ekki. Ég kunni ekki að tala um minn vanda, kunni ekki að teygja mig til bjargar. Ég reyndi að læra „að tala um  málin“ en við hvern? Það er ekki hægt að tala við hvern sem er um vanda sálarinnar.

Enginn hringir. Enginn kemur í heimsókn. Enginn vill heyra hvernig þér líður. Enginn vill heyra hvernig þú raunverulega hefur það. Þó spurt sé „hvernig hefurðu það“ er vænst annarra svara en „aldrei liðið verr!“ Veistu hvað er mikið af fólki um allan bæ sem líður svona? Félagslega einangrað og einmana – fast í gömlum hjólförum hugans.

Ég fann leiðina út úr einmanaleika þegar Ferlið fann mig – ekki strax en furðu fljótt. Ég lærði að vinda ofan af þungum hugsunum – komast upp úr hjólfari hugans – og sjá annað fólk rétt. Ég lærði að skilja hvernig ég hafði séð annað fólk rangt. Augu mín fóru að opnast fyrir öðrum og ég fékk áhuga á því sem ég sá. Ég lærði samskipti upp á nýtt. Lærði að finna þá sem geta – og vilja eiga – innihaldsrík samskipti, og hafa gaman af hinum.

Undanfarið hef ég átt í miklu dýpri efnahagslægð en ég átti fyrsta árið. Ég ætla ekkert út í þá erfiðleika nánar – þú nennir því ekkert – enda nenni ég því ekki.Það merkilega er allt annað:

Ég er ekkert einmana!

Meðan ég hripaði niður þessa punkta heyrði ég frá tveim vinum. Það líður ekki dagur án þess að ég heyri í góðum vin – jafnvel góðviðrisvin. Allir mínir vita hvað ég er að berjast við, allir vita þeir að ég mun klifra yfir það. Allir vita þeir hvernig ég nota „ferli jákvæða viljans“ – sumir þeirra nota það.

Það er ótrúlegt en satt: Að sigrast á þröskuldum lífsins er viðhorf, og veistu hvað: Það má nota rifsberjasultu, hún er fín hafi maður rétta viðhorfið.

Ferli hins jákvæða vilja
Nútímalíf er skemmtilega einkennilegt. Þunglyndi er daglegt líf margra. Reiði tröllríður heimilum. Vonleysi er viðvarandi víða. Yfirborðsmennska hefur meira vægi en gömul gildi. Draumar breytast í vonbrigði. Dómharka sjálfsögð en fyrirgefning erfið.

Afar okkar og ömmur þurftu bréfaskriftir – sem tóku vikur – til samskipta við ástvini erlendis. Við höfum SMS og email. Fyrir einni kynslóð tók dagleið að ferðast frá Reykjavík til Akureyrar, á vondum vegum sem kallast þvottabretti. Í dag er þetta í skottúr. Lífið er auðvelt í dag, en við erum ekkert glaðari. Þvert á móti, fólki finnst lífið erfitt.

„Ferli hins jákvæða vilja“ táknar einfalt, kraftmikið viðhorf til sigurs og sáttar.

Árangur í íþróttum krefst ferlis æfinga og aga. Að líða vel og viðhalda jákvæðni sama á hverju gengur krefst viðhorfs. Að glíma við hvers kyns vanda, krefst vilja.

Að rísa úr þunglyndi krefst viljastyrks. Að mæta mótlæti með jákvæðni krefst viljastyrks. Að breyta vonbrigðum í drauma sem rætast, krefst trúar sem þarf að rækta. Allt þetta byggist á hugsanaferlum til sigurs. Þannig er nafnið til komið.

Að rækta jákvæð viðhorf, að sjá lausnir þar sem aðrir sjá hindranir, að breyta veikleika í styrk. Þetta er ekki gert á einni helgi, né með einni bók. Þetta er gert í styrku ferli.

Ferlið er einföld aðferð til að skapa samfélag venjulegs fólks. Koma sér í gott form, og halda því. Nýta sér jákvæðan vilja til að hámarka vellíðan og árangur. Eiga gott samfélag við gott fólk.

Ferlið er einfalt námskeið og bætir við með eftirfylgni. Ferlinu líkur seint, því vellíðan og árangur er ávanabindandi. Á námskeiðinu lærast mjög einföld viðhorf til að stjórna eigin vellíðan og sjá drauma þín rætast

Upplýsingar í síma 778-1296

Einfalt og skilvirkt.

Draumar og innra líf
Manstu það sem þig dreymir á nóttinni? Eru draumar kannski bara rugl? Hefur þú lent í því að koma einhversstaðar og kannast við að það hafi gerst áður? Getur verið að þig hafi dreymt fyrir því? Getur verið að þú vitir hvernig líf þitt mun fara?

Allir hafa upplifað að draumar þeirra rætist. Við höfum öll lent í því að tilveran skammtar oft meira en það sem við látum okkur dreyma um. Margir draumar rætast jafnvel enn betur en við þorðum að vona. Oft þarf að taka áhættu til að draumar rætist, og varpa gömlum viðhorfum fyrir róða.

Hvaðan koma þínir dagdraumar? Eru dagdraumar bara fyrir börn? Kannastu við þegar þú gerir þvert á eigin vilja? Þú kannski reiðist eða fyllist afbrýðisemi, eða jafnvel ótta. Þekkir þú fólk sem kannar drauma sína, dagdrauma, og hlustar á innra líf? Vissir þú að þetta er fólk sem aðrir leita til, og að þetta fólk hefur lært að lifa í núinu og losa sig við áhyggjur, ótta og reiði.