hreinberg.is » Markmiðasetning

Verkfæri markþjálfunar í Ferlinu
Þú ætlar að breyta venju á borð við fara fyrr að sofa. Svo hefst skemmtilegt efni í sjónvarpinu og þú gleymir háttatímanum. Svo vaknarðu þreyttur og hugsar „ég fer alltaf seint að sofa og get ekki breytt því“.

Margir nota lista í svona vanda. Ferlið hefur ekki áhuga á listum og skipulagi. Þegar þú ætlar að vaka lengur eða fá þér súkkulaði manstu ekki listana. Flóknar útskýringar á flókinni tækni er ekki í boði.

Áherslan er á einfalda tækni og skýr viðhorf, til að ná árangri. Aðal áhersla ferlisins er því á viðhorf. Þú setur þér markmið og endurmetur það reglulega. Þú velur þér dagvenjur og mótar þær smámsaman til árangurs. Þú notar til þess einföld hugarkort og einfaldar glósur. Aðal verkfærið er tíminn. Þú leyfir þér að ná árangri smámsaman í stað þess að rífa þig niður ef það gerist ekki strax.

Markmið og Endurmat

Dagvenjur og skipulag

Hugarkort og glósur

Herra Tími

Við viljum einfaldar skýringar og einföld viðhorf í daglegu lífi. Við viljum vita að ástæðurnar séu vel ígrundaðar og byggðar á föstum grundvelli. Það dugar að vita að þær séu þarna. Við viljum ekkikafa djúpt í sálfræði eða heimspeki í hvert sinn – þó gaman sé.

Á orrustuvelli lífsins hefurðu ekki svigrúm til að spyrja þig um merkingu stríðsins. Geymdu slíkt fyrir eldhúsumræður.

Flest námskeið í sjálfshjálp bjóða mörg tól og flóknar útskýringar. Sem gleymast þegar við þurfum að nota. Þess vegna er Ferlið einfalt, aðferðir einfaldar, og árangurinn lærist. Hópvinnan tryggir að tólin skili venjum sem skila árangri. Þannig vex viljastyrkur.

Að setja sér markmið, og endurmeta eru fín orð og mikið notuð. Það tekur tíma að læra á þetta hugartól. Við viljum árangur strax en ekki á morgun, því okkur liggur á. Ferlið í hnotskurn er því þannig: Þú byrjar ferðina á einhverjum stað. Lærir einfaldar aðferðir og fetar þig í rétta átt.

Allar breytingar sem þú vilt sjá í lífi þínu taka tíma og löng ferð tekur mörg skref. Við sjáum ekki árangur ef við horfum á endatakmarkið. Því smáu skrefin skila okkur í rétta átt. Hefurðu horft á stóra vísinn á klukkunni? Þar kemur endurmat til hjálpar. Aðferð til að sjá smáu skrefin sem skila þér áfram.

Ekki ólíkt því að klífa fjall, sem er einmitt gert skref fyrir skref, upp á við: Ef ferðin er erfið og toppurinn virðist langt í burtu – þá finnst þér hægt miða og ferðin leiðinleg. Ef þú hvílir þig reglulega og lítur til baka, sérðu hve hátt þú ert kominn og hve ferðin er skemmtileg.

Einfalt er betra en flókið. Einföld viðhorfsbreyting sem skilar árangri. Þeir sem ná mestum árangri í lífinu hugsa allir svona.

Persónuleg hugleiðing um að halda sig við efnið
Enska síðan mín – logostal.com – er smátt og smátt að saxa á íslensku síðuna mína – hreinberg.is – og sumpart að taka framúr. Sem er verulega sérstakt.

Í fyrsta lagi geta pennar af mínu tagi sjaldan gert sér vonir um mikla lesningu og sérstaklega ekki þegar blandað er saman jafn mörgum og ólíkum straumum og ég geri.

Enn síður þegar skoðanir eru jafn langt út fyrir rammann og mínar eiga það til að eigra.

Þá er alltaf vafasamt að gera sér vonir um að geta náð árangri með öðru tungumáli en því sem maður hugsar á, því jafnvel þó maður nái að hugsa á öðru máli þá er setningaskipan með tilhneigingu til að lenda á gráu svæði.

Til dæmis er algengt að Íslendingar sem vinna mikið með Ensku, hvort heldur ritun eða lestur, lendi í að brengla setningaskipan þegar þeir skrifa á móðurmáli og öfugt. Ég viðurkenni heilshugar að oft þegar ég skrifa á öðru hvoru tungumálinu missi ég sjónar á öllum áttum varðandi hvorrar tungu setningaskipan ég nota og sigli bara á sjálfstýringunni.

Svo gripið sé í hina tunguna „I just wing it.“

Fyrir ári síðan var enska síðan mín með 15% af lesningu miðað við þá Íslensku en í dag er komin í u.þ.b. 60% að meðaltali. Auk þess er mun hærri endurheimsókn en 25% íslenskra lesenda koma aftur – samkvæmt Google Analytics – en tæplega 40% útlenskra lesenda koma aftur á þá ensku.

Einnig er meiri tíma varið á þeirri ensku – eða tvær til þrjár flettingar að meðaltali en að meðaltali ein og hálf á þeirri íslensku og varið er 50% meiri tíma á þeirri ensku. Þá er athyglisvert að árið 2014 tvöfaldaðist umferð á báðum síðum en árið 2013 jókst umferð um tvo þriðju.

Þetta síðasta er mér auðvitað kærast því þegar maður ákveður að marka sér braut á einstigi orðsins tekur við löng og ströng braut lærdóms og reynslu. Rétt eins og með tónlistarmenn má segja að andagift sé tíundi hluti og ástundun níu tíundu og það tekur yfirleitt mörg ár að marka sér nafn og finna lesendahóp.

Stærsta ábendingin sem ég fékk á þessari braut var fyrir tveim árum að ég rakst á tilvitnun eftir Seth Godin, sem löngu er orðinn vel þekktur skríbent á sviði Vefskrifa, og Vefútgáfu, um notkun Vefsins. Tilvitnunin hljómar svo; blog is not created, it is built.

Fram að þeim tíma hafði ég aldrei litið á smágreinarnar mínar sem neitt meira en eitthvað sem mér lá á hjarta og braust út. Ég hafði þær til skiptis á ýmsum ónotuðum lénum sem nalgun.is átti og þá eftir hentugleikum því ég færði þær til eftir því sem lénin voru tekin í notkun og undir það síðasta á undirlénum á útgáfuvefnum mínum not.is.

Þegar ég sá fyrrgreinda tilvitnun ákvað ég að kaupa sérstök lén, annað fyrir Íslenskar greinar og hitt fyrir enskar. Sú ákvörðun er án vafa hluti þess að skrif mín eru í sókn, því Google er stór hluti þess að efni fær lesendur og þegar greinaskrif á Vefnum eru á flækingi milli léna eða á undirlénum lækkar vægi þeirra í leitarniðurstöðum.

Ég segi smásókn því skrifin mín eru ekki með stóran lesendahóp í hausatölu, en þó, séð frá hlaðinu heima er hver haus merkilegur í mínum augum.

Reglulega fæ ég ábendingar og athugasemdir frá fólki, bæði vorlendingum og útlendingum, og þær saman við það sem að framan er talið segir mér að halda áfram að tjá mig um þann heim sem ég meðtek (perception) og upplifi. Þetta er skemmtilegra þannig, því viðbrögð skapa óbeina samræðu og lesandinn eykur því á dýptina ef maður veit af honum.

Ég var sumsé, rétt áðan að skoða Google Analytics mælingar, sem nalgun.is er með á öllum sínum vefsíðum, og þessar hugrenningar runnu um hugskotið.

Fimm skref til óhamingju
Fyrir mörgum árum kom út bók á ensku – sem ég held að hafi verið þýdd – og var titilinn svona: „Seven habits of highly effective people.“ Ekki er vonum að spyrja að bókin varð metsölubók.

Síðustu ár hefur efni af þessu tagi – eða sjálfshvatningar og sjálfsþróunar efni – verið afar vinsælt á Íslandi. Segja má að við séum fimm til sjö áratugum á eftir Bandaríkjunum hvað þetta varðar, og Evrópa er þar mitt á milli okkar og þeirra.

Tökum til gamans fleiri titla af samskonar efni:

The 21 Irrefutable Laws of Leadership

Awaken the Giant Within: How to Take Immediate Control of Your Mental, Emotional, Physical and Financial Destiny!

The One Minute Manager

Magic Of Thinking Big

Think and Grow Rich

The Success Principles(TM): How to Get from Where You Are to Where You Want to Be

The Power Of Positive Thinking

How to win friends and influence people

The Secret

Men are from Mars and Women from Venus

Emotional Intelligence

Þú ert það sem þú hugsar

… listinn er í raun ótæmandi

Þá er ekki vinsæl eftirfarandi spurning „hvers vegna er svona efni vinsælt?“ Enda liggur í augum uppi að allir vilja skara framúr eða ná árangri. Að ræða það eitthvað frekar er bara leiðinlegt.

Sjálfur hef ég lesið eitthvað af þessum bókum – eða hlustað á hljóðbókar útgáfu þeirra – eða þær sem ég nennti að lesa. Allar bækur af þessu tagi eru löng og þurr lesning og ef maður tileinkar sér ekki efni þeirra fljótt og vel verða þær leiðinlegar. Þannig enda margar þeirra á því að segja þér hvers vegna þú sért ekki að slá í gegn og allt of mikið af smáatriðum sem er langsótt að muna og tileinka sér til árangurs.

Vinsældir þessa efnis heldur þó áfram og mikið af fólki slær í kringum sig frösum úr efni af þessu tagi og bylgjan heldur áfram. Undanfarin ár hefur sífellt sótt í sig veðrið svonefnd Markþjálfun sem gengur mest út á að sérkennslu frá aðila sem hefur lesið aragrúa sjálfshvatningarbóka, sótt óteljandi fyrirlestra, skyggnt í glærur, tekið glósur – jafnvel tileinkað sér – og lært Markþjálfun.

Fyrir rúmum tíu árum var mjög vinsælt að velta sér upp úr tímastjórnun, sem þá var heitust. Ég lofa þér að eftir tíu ár verður eitthvað annað í tísku. Ég lærði tímastjórnun á sínum tíma og hef nýtt mér hana á mörgum sviðum s.s. kennslu, bókaskrif, forritun, útgáfustjórnun tímarits og jafnvel í einkalífi. Einnig fékk ég að kenna tímastjórnun í fáein skipti árin 2000 til 2002.

Þú veist að þú kannt tímastjórnun þegar þú hefur náð jafn langt og Madonna. Eiginmaður hennar fyrrverandi lýsti því eitt sinn yfir að hann hefði bara fengið kynlíf klukkan 17:00 á fimmtudögum, og það frekar tæknilegt og innihaldslítið.

Nú veit ég ekki hvort framangreind fullyrðing um einkalíf Madonnu er rétt, en hún hefur feykdjúpt innihald:

Veistu hversu mikil streyta ríkir á toppnum?

Veistu hversu erfitt er að hafa innihaldsríka dýpt í lífi sínu þegar þú lifir eftir klukkunni?

Veistu hvers virði það er á dánarbeði að geta reytt af sér lista yfir allt sem þú hefur áorkað, en vita ekki hvort þú lifðir lífinu?

Hefurðu prófað að lifa eftir fjórum mánuðum í dagatalinu, í stað tólf?

Hefurðu upplifað djúpa kyrrð í þínu lífi, og samt komið markmiðum þínum í framkvæmd?

Eru draumar þínir að rætast? Veistu hverjir þeir eru? Þekkirðu muninn á táldraumum og sáldraumum?

Þegar ég nýtti mér tímastjórnun á sínum tíma var það út frá tvenns konar nálgun. Í fyrstu hafði ég lært hana af nauðsyn þegar ég stýrði tímarits útgáfu árin ’93 til ’97. Síðar sló í gegn bókin „30 ÁHRIFARÍK ráð sem bæta tímastjórnun og margfalda árangur“ sem út kom árið 1995. Um 2000 var hún mjög víðlesin og nýtt enda stútfull af hagnýtum ráðum.

Samlegðaráhrif þessara tveggja þátta í mínum reynsluheimi voru þó mun einfaldari en allur framangreindur bingur. Eins og allt sem kemur að „Ferli hins jákvæða vilja“ þá er sú nálgun bæði einföld og kraftmikil:

Gerðu tvenns konar markmiðalista, og lestu hann vikulega: Langtíma markmið og skammtímamarkmið/tossalisti.

Gerðu þriðja listann yfir langtíma markmið sem þú hefur strokað út eða náð, og lestu hann ársfjórðungslega.

Taktu þér hálfa til heila klukkustund hvern dag til að upplifa kyrrð og hafðu glósubók við höndina.

Lærðu að gera hugarkort í stílabók.

Ef þú vilt læra að skara fram úr þá skiptir engu hvaða bækur þú lest eða hvaða námskeið þú ferð á. Það skiptir heldur engu máli hvað þú nærð miklum árangri í augum annarra ef einkalíf þitt er ófullnægt.

Einkalíf þitt nær aldrei fullnægju ef þú veist ekki hvað býr í djúpum sálar þinnar og þú færð aldrei að vita hvað þar er nema þú náir tangarhaldi á kyrrðinni. Síðustu tvö skrefin í framangreindum lista er einmitt aðferðin til þess.

Þá er tilgangslaust að vinna að markmiðum ef þú sérð ekki smáu skrefin sem skila þér þangað. Því er marklaust að gera markmiðaskrá og yfirvinna hindranir eða styrkja fókus þinn í baráttu við lífið ef þú lítur ekki reglulega yfir farinn veg. Það er einfalda og áhrifaríka leiðin til að sjá sjálfan sig styrkjast.

Fyrsta skrefið er auðvitað augljóst: Þú veist ekki hvert þú stefnir ef þú hefur engin markmið, en mundu umfram allt: Það má vera markmið að hafa ekkert markmið. Frummenn mannkynssögunnar voru ekki óhamingjusamt fólk, lifandi í frumskógum og á sléttum úti alls óvitandi um önnur markmið en að sjá ættflokknum fyrir mat, húsaskjóli og sögum eða ljóðum.

Þó að þú búir í samtíma sem hefur selt  þér hugmyndir um skilvirkni, árangur, og eitthvað háleytt sem enginn veit hvers virði er, þá ertu umfram allt andleg vera, hugsandi vera, og til hvers er framúrskarandi líf ef þú veist ekki hvers líf það er?

Að lokum vil ég koma á framfæri einni málsgrein sem í mínum huga segir allt framangreint: Allir bestu listamenn sögunnar voru letihauguar sem eyddu þriðjungi ævinnar í dróma, en létu ekkert stöðva sig þegar þeir vissu hvað þeir vildu.

Því sá sem hefur trú á sjálfan sig, veit hvert hann stefnir og lærir að koma sér þangað. Sá sem hefur keypt þann áróður samfélagsins sem sannfærir hann um að efast um sjálfan sig og sýna innri mystík, hann þarf að lesa margar bækur.

Verkfæri
Þú ætlar að breyta venju á borð við fara fyrr að sofa. Svo hefst skemmtilegt í sjónvarpinu og þú gleymir háttatímanum. Svo vaknarðu þreyttur og hugsar „ég fer alltaf seint að sofa og get ekki breytt því“.

Margir nota lista í svona vanda. Ferlið hefur ekki áhuga á listum og skipulagi. Þegar þú ætlar að vaka lengur eða fá þér súkkulaði manstu ekki listana. Flóknar útskýringar á flókinni tækni er ekki í boði.

Áherslan er á einfalda tækni og skýr viðhorf, til að ná árangri. Aðal áhersla ferlisins er á viðhorf. Þú setur þér markmið og endurmetur það reglulega. Þú velur þér dagvenjur og mótar þær smámsaman til árangurs. Þú notar til þess einföld hugarkort og einfaldar glósur. Aðal verkfærið er tíminn. Þú leyfir þér að ná árangri smámsaman í stað þess að rífa þig niður ef það gerist ekki strax.

Markmið og Endurmat

Dagvenjur og skipulag

Hugarkort og glósur

Herra tími

Við viljum einfaldar skýringar og einföld viðhorf í daglegu lífi. Við viljum vita að ástæðurnar séu vel ígrundaðar og byggðar á föstum grundvelli og það dugar okkur að vita að þær séu fyrir hendi. Við viljum ekki kafa djúpt í sálfræði eða heimspeki í hvert sinn sem við tökum afstöðu- þó gaman sé.

Á orrustuvelli lífsins hefurðu ekki svigrúm til að spyrja þig um merkingu stríðsins. Geymdu slíkt fyrir eldhúsumræður.

Flest námskeið í sjálfshjálp bjóða mörg tól og flóknar útskýringar. Sem gleymast þegar við þurfum að nota. Þess vegna er Ferlið einfalt, aðferðir einfaldar, og árangurinn lærist. Hópvinnan tryggir að tólin skili venjum sem skila árangri. Þannig vex viljastyrkur.

Að setja sér markmið, og endurmeta eru fín orð og mikið notuð. Það tekur tíma að læra á þetta hugartól. Við viljum árangur strax en ekki á morgun, því okkur liggur á.

Allar breytingar sem þú vilt sjá í lífi þínu taka þó tíma og löng ferð tekur mörg skref. Við  sjáum ekki árangur ef við horfum á endatakmarkið. Því smáu skrefin skila okkur í rétta átt. Hefurðu horft á stóra vísinn á klukkunni? Þar kemur endurmat til hjálpar. Aðferð til að sjá smáu skrefin sem skila þér áfram.

Ferlið í hnotskurn: Þú byrjar ferðina á einhverjum stað. Lærir einfaldar aðferðir og fetar þig í rétta átt.

Ekki ólíkt því að klífa fjall, sem er einmitt gert skref fyrir skref, upp á við: Ef ferðin er erfið og toppurinn virðist langt í burtu – þá finnst þér hægt miða og ferðin leiðinleg. Ef þú hvílir þig reglulega og lítur til baka, sérðu hve hátt þú ert kominn og hve ferðin er skemmtileg.

Einfalt er betra en flókið. Einföld viðhorfsbreyting sem skilar árangri.

Þeir sem ná mestum árangri í lífinu hugsa allir svona.

Um Ferlið
Tilveran er einföld, lífið stutt, og gaman að vera til. Eða það finnst flestum. Þó er algengt að fólk lifi við vanlíðan og ýmis konar andlega kvilla s.s. þunglyndi, depurð og kvíða. Ennfremur sést oft að ótti ræður ríkjum og þá svo bældur að sá sem stjórnast af ótta er e.t.v. ekki meðvitaður um það. Sjálfsvanmat og skortur á sjálfsvirðingu orsakar árekstra og frekari vanliðan.

Ferli hins jákvæða vilja er leið til að auka lífsgleði sína og innri kraft. Ná meiri árangri, og einfalda lífið. Umfram allt er Ferlið kraftmikil leið til að endurskapa sjálfan sig til að verða sú manneskja sem mann hefur alltaf langað til að vera. Verða manneskjan sem sér drauma sína rætast.

Þú færð innri styrk, jákvæðni og innri vellíðan. Þú eignast skapandi og kraftmikið líf. Ferli jákvæða viljans er lífsviðhorf til að öðlast viljastyrk og gleðiríkt líf.

Þú notar Ferlið og sérð árangur. Þú munt uppskera og vellíðan mun geisla frá þér. Þeir sem eru í Ferlinu eignast samfélag kraftmikils jákvæðs fólks. Þú finnur að þú tilheyrir.

Allir vilja þroskast og styrkjast. Ferlið er einföld leið til varanlegs árangurs og krafmikillar tilveru. Það opnar fyrir nánara samfélag við jákvætt fólk í sama farvegi, sem stendur fyrir það sama og þú.

Hvað stendur þú fyrir

“Ferli hins jákvæða vilja” er einföld aðferð til að lifa jákvæðu, viljasterku, kraftmiklu og skapandi lífi. Hið einfalda hefur djúpar rætur og það tekur tíma að tileinka sér það – enda er það ferli. Þó tekur bara sex vikur að læra það: Þekking sem endist.

Ekki er verið að finna upp hjólið. Til er fullt af aðferðum, og allar góðar. Að ekki sé talað um það besta úr trúarbrögðunum.

Til að dæmis var Gandhi sterkur andlegur leiðtogi á síðustu öld en stofnaði engin trúarbrögð. Heldur lagði hann áherslu á það besta úr þeim öllum.

Þannig er Ferlið samsett úr einföldum viðmiðum, hugarferlum og líkamsrækt, sem virka. Virka í þeirri merkingu að þú finnur leiðina til hamingjunnar ef þú iðkar það. Stór orð? Þau hafa staðist eldskírn.

Ég var einu sinni þunglyndur og leið mjög illa. Ég er enn að stríða við þunglyndið sem kemur og fer í bylgjum. Mér líður ekki illa yfir þunglyndi: Það stjórnar mér ekki lengur.

Þú færð innri styrk, jákvæðni og innri vellíðan. Þú eignast skapandi og kraftmikið líf. Ferli jákvæða viljans er lífsviðhorf til að öðlast viljastyrk og gleðiríkt líf.

Þú notar Ferlið og sérð árangur. Þú munt uppskera og vellíðan mun geisla frá þér. Þeir sem eru í Ferlinu eignast samfélag kraftmikils jákvæðs fólks. Þú finnur að þú tilheyrir.

Allir vilja þroskast og styrkjast. Ferlið er einföld leið til varanlegs árangurs og krafmikillar tilveru. Það opnar fyrir nánara samfélag við jákvætt fólk í sama farvegi, sem stendur fyrir það sama og þú.

Hvað stendur þú fyrir

“Ferli hins jákvæða vilja” er einföld aðferð til að lifa jákvæðu, viljasterku, kraftmiklu og skapandi lífi. Hið einfalda hefur djúpar rætur og það tekur tíma að tileinka sér það – enda er það ferli. Þó tekur bara sex vikur að læra það: Þekking sem endist.

Ekki er verið að finna upp hjólið. Til er fullt af aðferðum, og allar góðar. Að ekki sé talað um það besta úr trúarbrögðunum.

Til að dæmis var Gandhi sterkur andlegur leiðtogi á síðustu öld en stofnaði engin trúarbrögð. Heldur lagði hann áherslu á það besta úr þeim öllum.

Þannig er Ferlið samsett úr einföldum viðmiðum, hugarferlum og líkamsrækt, sem virka. Virka í þeirri merkingu að þú finnur leiðina til hamingjunnar ef þú iðkar það. Stór orð? Þau hafa staðist eldskírn.

Ég var einu sinni þunglyndur og leið mjög illa. Ég er enn að stríða við þunglyndið sem kemur og fer í bylgjum. Mér líður ekki illa yfir þunglyndi: Það stjórnar mér ekki lengur.

Nánari upplýsingar í síma 778-1296.