hreinberg.is » Stjórnmálafólk

Að stilla viðmiðin á milli elítu og eigin sjálfs
Gúglaðu mynd af ríkisstjórninni – líttu vandlega á svipinn og klæðaburðinn – leitaðu merkis um sjálfstæða sál annars vegar og auðsveipa sál með verðmiða hins vegar.

Sjáðu svo lekamálið, eða hvaða spuna sem vera skal, í því ljósi og ef þú sérð í gegnum fléttuna, youtubaðu þá myndskeiðin mín um Lekamáls samsærið.

Spurðu svo hvers vegna auðsveip þjóðin – sprenglærð sem hún þykist vera – trúir á valdstjórnina og tófurnar hennar? Því þú hlýtur að vita að valdkerfi hrynur þegar trúin á vald þess hverfur.

mynd tengd inn frá visir.is

mynd tengd inn frá dv.is

mynd tengd inn frá timarim.is

mynd tengd inn frá utanrikisraduneyti.is

mynd tengd inn frá vb.is

Fréttatenglar til samanburðar

http://www.vb.is/frettir/84740/

http://www.utanrikisraduneyti.is/frettir/nr/6059

http://www.visir.is/kinverjar-maettir-til-ad-hefja-oliuleitina/article/2014141029860

http://www.visir.is/2,5-milljardar-i-oliuleit-a-drekasvaedi-a-naesta-ari/article/2014141019233

Munum að þegar við hættum að fylgja fyrirmyndum, hættum að trúa í blindni, byrjum að axla okkar eigin ábyrgð á okkar eigin málum að innan og út, og hefjum virðingarfulla samræðu við náunga okkar; er stutt í að valdið hætti að tilheyra elítunni sem dáleiðir skrýlinn heldur vex upp frá rótum okkar sjálfra.

Því maður sem ekki hlýðir; honum er ekki stýrt.

EES brýtur þjóðarsáttmálann
Lestu samantekt EES samningsins og lestu svo stjórnarskrána frá 1944. Lestu svo almenn hegningarlög, og notaðu svo Netið: Athugaðu hverjir samþykktu þennan samning sem er hrein landráð.

Ég er á móti því að Lýðveldismafían tróð alþjóðasamningi og valdaafsali upp á þjóð sem krafðist þess að geta kosið um samninginn. Samning sem þar að auki er brot á samningi stjórnkerfis við þjóðina.

Er til yfirlit yfir hversu mörg lög frá Brussel eru sjálfkrafa gild á Íslandi í dag?

Það er ekki að ástæðulausu, sú margsagða fullyrðing mín að stjórnkerfið hefur tekið vald yfir þjóðinni og er bæði að kúga þjóð sína og einnig að svíkja grundvallar samning sinn við hana. Valdakerfi lýðræðis á að hlýða þjóð sinni, en ekki öfugt.

Ég hef ekki kynnt mér kosti og galla EES samningsins í heild en í grundvallar atriðum myndi ég sem einstaklingur kjósa gegn honum.

Sjálfur er ég algjörlega á móti inngöngu í sovétríki Evrópu. Afstaða mín í því máli er fyrst og fremst fólgin í því að ég vil algjört sjálfstæði Íslenzku þjóðarinnar til að ráða sínum málum sjálf og græða eins og hún getur á sérstöðu sinni sem er mikil.

Einnig er afstaða mín byggð á því sem ég hef kynnt mér á Evrópskum miðlum varðandi framkomu þessa sambandsríkis og ennfremur vegna einnar risastórrar spurningar sem ég hef hvergi séð svarað.

Þegar Sambandsríki Norður Ameríku klofnaði í tvennt árið 1860 upphófst blóðug borgarastyrjöld til fimm ára, sem stóð ekki um þrælahald þó upphafið snérist um þrælahald. Deilur um þrælahald snérust bæði um mannréttindaskilning og um efnahagsmál því ríkin í Suðri byggðu efnahag sinn á þrælahaldi og óttuðust breytingar.

Deilan varð svo hatrömm, á um tuttugu ára tímabili, að hún endaði á því að þrælaríkin klufu sig frá sambandsríkinu og stofnuðu sitt eigið. Abraham Lincoln snérist öndverður gegn þessum klofningi og hélt því fram að ríki hefðu ekki rétt til að kljúfa sig fra sambandsríkinu.

Aðeins væri hægt að ganga í það en ekki úr því aftur.

Þessi deila endaði á stríði og ég óttast að sú staða muni fyrr eða síðar koma upp í Evrópu. Nú þegar sést örla á slíkum hugleiðingum í grasrót og lágpólitík Evrópu, en mjög lágvært því menn óttast afleiðingarnar; að sambandið klofni í Miðjarðarhafs ríkin og Norður Evrópuríkin.

Sá sem ekki óttast afleiðingarnar veit ekkert um styrjaldagleði þessarar álfu síðustu 2000 árin. Einnig má ekki gleyma því að stjórnmála flokkur sem berst af alefli fyrir útgöngu Bretlands úr sambandsríki Evrópu vex ásmegin árlega og margir óttast að Bretar muni kljúfa sig frá.

Til gamans má geta þess, fyrst minnst var á Abraham Lincoln, sem er einn mest dáðu forseta Bandaríkjanna, að hann er höfundur setningarinnar „might makes right“. Sem er utanríkis og efnahagsstefna Bandaríkjanna í hnotskurn.

Hvað allt þetta snertir er ég ekki viss hvað þjóðin mun ákveða þegar Þjóðveldi rís. Mín skrif snúast svo gríðarmikið um Endurreist Þjóðveldi – sem í mínum huga er samnefnari Beins lýðræðis og Fjárhagslegs sjálfstæðis – að ég vil skýra afstöðu mína enn frekar: Ég mun standa með ákvörðun sem þjóðin tekur með beinu lýðræði, hiklaust.

Þannig séð, þó ég vilji ekki ganga í sambandið, þá vil ég Beint lýðræði; Þetta er sitt hvort baráttumálið. Annað þeirra er persónulegt, hitt er málefnalegt.

Að þessu sögðu, bíðum með Evrópumálin þar til við sjáum hvort sambandið sé að klofna, einnig hvort Evran sé hrunin (allir sem ekki keyptu spunann vita að dollarinn er betri) og skilgreinum hvers virði sjálfsákvörðunarréttur okkar er.

Rétt í blálokin, þar sem grein mín er svar við tengdri frétt: Hverjum er ekki sama þó lýðveldismafía sem kúgar þjóð sína, brýtur stjórnlagasáttmála sinn við þjóð sína, og þaggar, kúgar og mannréttindabrýtur þegna sína, brjóti alþjóðasamning sem er stjórnarskrárbrot?

Þetta er ekki valdakerfi þjóðarinnar, ekki í raun og veru. Þjóðin ræður engu, en það kemur þegar hún fær nóg og fattar hvers virði hún er.

Hið heilaga orðagjálfur
Atkvæði þitt í kosningum er ávísun á vald þitt. Þegar þú gengur inn  í kjörklefa þá velur þú hver eigi að höndla ávísun þína næstu fjögur  ár. Þú velur fulltrúa þinn, eða handhafa valds þíns, af lista sem var  valinn fyrirfram. Þú hefur engin áhrif á hvernig það val fer fram.

Þegar  þú velur handhafa valds þíns þá hefurðu tvennt til að miða við. Annars  vegar sögu þessa handhafa undangengin fjögur ár og jafnvel lengur. Sem  krefst þess að þú fylgist með. Hins vegar getur þú lesið á milli línanna  af loforðagjálfri viðkomandi.

Fólk segir oft að ekkert sé að  marka stjórnmálamenn og ennfremur að Alþingi – eða vinnustaður þeirra –  hafi misst virðingu þjóðar. Á sama tíma gleymir fólk að þjóðin velur þetta fólk á meðan það ávísar valdi sínu gegn ódýrum og innantómum loforðum.

Á sama tíma og almenningur kaupir  innantómt orðagjálfur – sem ég nefni oft faglegt orðagjálfur – lítur  hann framhjá þeim valkostum sem hann hefur til að taka vald sitt aftur.  Því hvað gerir þú ef þú færð iðnaðarmann til að laga lekt þak, borgar  honum fyrirfram, en hann kemur ekki næstu fjögur ár?

Tvennt ber hér að útskýra nánar.

Með orðunum faglegt orðagjálfur meina  ég alla þá orðavaðla og fínheit sem velta upp úr embættismönnum,  prófessorum og stjórnmálamönnum, þegar þeir útskýra í meginfjölmiðlum  hin ýmsu málefni og úrræði. Oft er um alls konar orðhengilshátt að ræða  sem yfirleitt útskýra fyrir fólk hvers vegna kerfið þurfi að sniðganga vilja fólksins sem í orði kveðnu eiga samfélagið.

Fólk  nennir ekki að setja sig inn í orðavaðlana og samþykkir það sem hljómar  best en vill þó frekar komast í afþreyingu og treysta hinu  vel-hljómandi fólki fyrir málunum.

Hitt sem þarf að útskýra nánar eru þau úrræði sem í boði eru, og þá meina ég endurreist Þjóðveldi.  Nú er algengt að fólk segi við þeirri hugmynd „enga vitleysu“ – enda er  ekki um að ræða faglegt orðagjálfur eins og fólk er vant. Því enginn  hlustar á orðagjálfur heldur þarf það bara að hljóma faglega. Hér á  eftir mun ég rökstyðja þetta nánar og sýna fram á að þjóðveldis hugsjónin er langt frá því að vera vitleysa.

Hugmyndafræðin  fyrir endurreistu Þjóðveldi er byggð á eftirfarandi þáttum: a)  Borgaralegum mótþróa. b) Afskriftum bankakerfisins. c) beinu lýðræði.  Allt eru þetta hugmyndir sem hafa áður verið rökstuddar ýtarlega í  mannkynssögunni og notaðar víða með frábærum árangri.

Grunnþættir þessarar stefnu eru útskýrðir í bók minni „Endurreist  Þjóðveldi 2013“ sem er aðgengileg í lesformi og sem hljóðbók á shop.not.is.

Sá  sem álítur þessa þætti vera kjánalega – það að byggja hugmyndafræði á  þrautreyndum aðferðum og þekkingu – hann er sá sem átt er við með  frasanum „fíflið hlær að því sem það skilur ekki.“

Því sá sem  ekki þekkir þessi atriði hefur ekki lesið Íslandssöguna, þekkir ekki  mannkynssöguna – þá sérstaklega á tuttugustu öldinni – og hefur ekki  lesið sér til um hvernig fjármálakerfið virkar (sem hann er þó hluti af  og byggir afkomu sína á). Hann hefur sumsé ekki tekið eftir í skóla og  ekki viðhaldið eða unnið úr þekkingu sinni.

Það er maðurinn sem  heldur áfram að kjósa yfir sig hið faglega orðagjálfur og svikin loforð  af því tagi sem núverandi stjórnvöld íslenska lýðveldisins gerast sek  um, samanber þá frétt sem þessi færsla er tengd við.

Sjálfur vel  ég Þjóðveldi Íslands með beinu persónukjöri og endurreistum  héraðsþingum. Þegar það rís, á þjóveldishátíð á Þingvöllum, verður  skuldaflétta bankabjólfanna núlluð og kerfið endurreist með nýjum  áherslum.

Að endingu minni ég lesanda minn á að stórhætta er á að bankarnir falli aftur á næstu mánuðum. Komdu fé þínu í skjól.